Giorno Mini
Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira
Giorno Mini er fyrirferðarlítil kaffivél með glæsilega hönnun sem lyftir upplifuninni á hverju hótelherbergi og passar nánast alls staðar. Vélin er orkusparandi þar sem hún fer sjálfkrafa í biðstöðu eftir 2 mínútur og er einungis 30 sek. að hita sig upp aftur. Vélin lætur einnig vita þegar þarf að fylla á vatn eða sinna viðhaldi, svo sem afkölkun. Alltaf er hægt að treysta á að fá sömu fyrsta flokks Nespresso kaffiupplifunina í hverjum bolla, án þess að það krefjist mikils rýmis.
- Fjölbreyttar kaffistærðir og heitt vatn
- Snertitakkar fyrir einfalda notkun
- 30 sek. upphitunartími
- Fer í biðstöðu eftir 2 mínútur
- Tilkynningar fyrir vatnsskort og viðhald (t.d. afkölkun)
- 14 x 41,4 x 24 cm (b x d x h)
- 4,7 kg
- 0,7 lítra vatnstankur (fjarlægjanlegur)
- Hylkjaskúffa tekur 10 hylki
Giorno Mini vélin er sérstaklega hönnuð fyrir Nespresso kaffihylkin og kallar fram bestu eiginleika þeirra. Til að njóta kaffisins nákvæmlega eins og kaffisérfræðingar okkar ætluðust til, mælum við eingöngu með notkun á okkar eigin hylkjum.